FAST-2 ehf., dótturfélag FAST-1 slhf., hefur gengið frá kaupum á eigninni Klettagörðum 13, 104 Reykjavík. Eignin er alls 8.927 fermetrar að stærð og er leigð að fullu til N1 hf. Kaupin eru í samræmi við fjárfestingastefnu FAST-1 slhf., móðurfélags FAST-2 ehf. og er fjármögnun þeirra í samræmi við yfirlýsta fjárhagsskipan samstæðunnar. Eignin mun standa til tryggingar á útgáfu skuldabréfa FAST-1 slhf. líkt og aðrar eignir félagsins. Kaupverðið er trúnaðarmál. Nánari upplýsingar veitir: Gísli Reynisson hjá Contra ráðgjöf gisli@contra.is / s: 856 5111 [HUG#1672971]
FAST-2 ehf., dótturfélag FAST-1 slhf., kaupir eignina ad Klettagörðum 13.
| Source: FAST-1 slhf.