Uppgjör ársins 2012 - Kynningarfundur 6. febrúar 2013


Marel hf. mun birta ársreikning sinn fyrir árið 2012 eftir lokun markaðar þann 5. febrúar 2013.

Marel boðar til kynningarfundar með markaðsaðilum og fjárfestum, þar sem stjórnendur félagsins, þeir Theo Hoen, forstjóri og Erik Kaman, fjármálastjóri, kynna uppgjör félagsins fyrir árið 2012.

Kynningarfundurinn verður haldinn miðvikudaginn 6. febrúar kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Austurhrauni 9, Garðabæ.

Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast

Morgunverður frá kl. 8:00.