Tilkynning frá Seðlabanka Íslands vegna frétta um fjárfestingakosti aflandskrónueigenda


Í Seðlabankanum hafa um alllangt skeið verið til skoðunar ýmsar hugmyndir um framkvæmd áætlunar um losun fjármagnshafta, m.a. frá ýmsum aðilum utan bankans. Engin afstaða hefur verið tekin til þessara hugmynda og á þessu stigi er ótímabært að fullyrða um hvaða leiðir verða farnar. Breytingar á fjárfestingarheimildum eru háðar breytingum á lögum um gjaldeyrismál nr. 87/1992.