Í janúar nam fjöldi farþega í millilandaflugi 109 þúsund og fjölgaði þeim um 17% miðað við janúar á síðasta ári. Framboð í millilandafluginu var aukið um 23%. Sætanýtingin var 69,0% og lækkaði um 0,5 prósentustig í mánuðinum á milli ára. Fjöldi farþega í innanlands- og Grænlandsflugi voru rúm 21 þúsund í janúar og fækkaði um 7%. Dregið hefur úr eftirspurn í innanlandsflugi og hefur verið brugðist við með minna framboði. Framboð í janúar var 12% lægra en í janúar á síðasta ári og sætanýting var 66,0% samanborið við 63,1% í janúar 2012. Seldir blokktímar í leiguflugi voru 7% færri en í janúar á síðasta ári. Fraktflutningar jukust um 10% á milli ára. Seldar gistinætur hjá Flugleiðahótelunum jukust um 27% á milli ára. Herbergjanýting var 46,6%, eða 0,9 prósentustigum hærri en í janúar 2012.
MILLILANDAFLUG | JAN 12 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 109.089 | 17% |
Sætanýting | 69,0% | -0,5 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) | 451.995 | 23% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | JAN 12 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 21.458 | -7% |
Sætanýting | 66,0% | 3,0 %-stig |
Framboðnir sætiskm. ('000) | 10.082 | -12% |
LEIGUFLUG | JAN 12 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 75,0% | -13,5 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.704 | -7% |
FRAKTFLUTNINGAR | JAN 12 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 13.225 | 11% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 7.444 | 10% |
HÓTEL | JAN 12 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 22.940 | 24% |
Seldar gistinætur | 10.694 | 27% |
Herbergjanýting | 46,6% | 0,9 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010