Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 14 0314 OG RIKB 22 10 26


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 14 0314 og RIKB 22 10 26 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 14 0314:

Alls bárust 5 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.200 m.kr. að nafnverði. 5 tilboðum var tekið fyrir 1.200 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,775 (3,05% ávöxtunarkröfu).

RIKB 22 10 26:

Alls bárust 18 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 4.120 m.kr. að nafnverði. 16 tilboðum var tekið fyrir 3.920 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 105,350 (6,48% ávöxtunarkröfu).

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 12. febrúar. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 13. febrúar 2013.


Attachments

NidurstodurRIKB_08.feb.2013.pdf