Útboð á verðtryggðum skuldabréfaflokki RIKS 33 0321 í tengslum við losun gjaldeyrishafta


Lánamál ríkisins munu bjóða verðtryggðan flokk ríkisbréfa RIKS 33 0321 í tengslum við gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður þann 19. mars n.k.

Söluverð á flokknum fyrir gjaldeyrisútboðið verður tilkynnt eftir lokun markaða kl. 16:00 þann 15. mars 2013.

Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9633.


Attachments

Útboðsskilmálar MEÐ KVÖÐUM RIKS 33 0321.xps