Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 13 0515 og RIKV 13 0815 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag.
Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360).
Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:
RIKV 13 0515:
Alls bárust 6 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 4.900 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 4.000 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,240 (flatir vextir 3,10%).
RIKV 13 0815:
Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.885 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 1.385 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,368 (flatir vextir 3,30%).