Islandsbanki hf. : Ársuppgjör 2012 birt þann 28. febrúar


Íslandsbanki mun birta ársuppgjör 2012 fyrir opnun markaða fimmtudaginn 28.
febrúar 2013. Síðar um daginn munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka,
og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á opnum
fjárfestafundi og svara fyrirspurnum.
Fundurinn hefst kl. 16.00 og fer fram á íslensku.
Hægt verður að nálgast fundargögn frá kynningunni á
www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.
  * Tími: 16.00
  * Staðsetning: Íslandsbanki, Kirkjusandur 2, 5. hæð
  * Skráning: Vegna aðgangsmála er nauðsynlegt að gestir skrái sig á
    afkomukynninguna með tölvupósti til:  ir@islandsbanki.is

Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér:
http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/.
Nánari upplýsingar veita:
  * Fjárfestatengill - Jóhann Wathne, johann.wathne@islandsbanki.is og í síma
    440 4607.
  * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir,
    gudny.helga.herbertsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 3678.


[HUG#1677924]