Eimskipafélag Íslands hf. birtir ársreikning fyrir árið 2012 og uppgjör fjórða ársfjórðungs 2012

Kynningarfundur 1. mars 2013


Eimskipafélag Íslands hf. birtir ársreikning sinn fyrir árið 2012 og uppgjör fjórða ársfjórðungs 2012 eftir lokun markaðar fimmtudaginn 28. febrúar 2013.

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Gylfi Sigfússon, forstjóri, og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, munu kynna uppgjör félagsins fyrir árið 2012 og uppgjör fjórða ársfjórðungs 2012.     

Fundurinn verður haldinn föstudaginn 1. mars 2013 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst kl. 8:30. Boðið verður uppá morgunverð frá kl. 8:15.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.