Niðurstöður viðbótarútgáfu

Útboð RIKB 31 0124 viðbótarútgáfa


Samkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 22. febrúar sl. stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í RIKB 31 0124 fyrir 545 m.kr.  Selt magn í flokki RIKB 31 0124 nemur því 6.345 m kr. að nafnvirði. Uppgjör er 27. febrúar 2013.