Flutningatölur febrúar 2013


Í febrúar flutti félagið um 104 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 12% fleiri en í febrúar á síðasta ári. Framboðsaukning  á milli ára í febrúar nam 17%. Sætanýting var 73,6% og dróst saman um 1,4 prósentustig á milli ára.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru um 23 þúsund í febrúar sem er fækkun um 11% á milli ára.  Framboð félagsins í febrúar var dregið saman um 15% samanborið við febrúar 2012. Sætanýting nam 71,2% og jókst um 2,7 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 17% á milli ára.  Fraktflutningar drógust saman 1% frá því á síðasta ári. Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 21% miðað við febrúar á síðasta ári. Herbergjanýting var 70,1% samanborið við febrúar í fyrra er hún nam 69,8%.

 

MILLILANDAFLUG FEB 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 104.360 12% 213.305 14%
Sætanýting 73,6% -1,4 %-stig 71,0% -1,0 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) 389.952 17% 841.947 20%
         
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG FEB 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 22.977 -11% 44.437 -9%
Sætanýting 71,2% 2,7 %-stig 68,6% 2,8 %-stig
Framboðnir sætiskm. ('000) 9.831 -15% 19.913 -13%
         
LEIGUFLUG FEB 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Flugvélanýting 88,3% -1,0 %-stig 81,3% -7,6 %-stig
Seldir blokktímar 2.246 -17% 4.950 -12%
         
FRAKTFLUTNINGAR FEB 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 11.949 -2% 25.174 5%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 7.127 -1% 14.571 4%
         
HÓTEL FEB 13 BR. (%) ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 20.720 20% 43.660 22%
Seldar gistinætur 14.526 21% 25.220 23%
Herbergjanýting 70,1% 0,3 %-stig 57,8% 0,4 %-stig

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010


Attachments

Traffic Data - February 2013.pdf