Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar


Reykjavíkurborg var með skuldabréfaútboð í flokki RVK 09 1 og RVK 19 1 þann 6. mars 2013. 

Alls bárust tilboð í RVK 09 1 að nafnvirði ISK 1.225.000.000 á bilinu 3,02% - 3,30%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 600.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,02%. Útistandandi fyrir voru ISK 16.090.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 16.690.000.000.

Alls bárust tilboð í RVK 19 1 að nafnvirði ISK 1.085.000.000 á bilinu 2,16% - 2,45%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 210.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,16%. Útistandandi fyrir voru ISK 1.535.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 1.745.000.000.

 

 

Nánari upplýsingar gefur:

Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321
Netfang: bbs@rvk.is