Islandsbanki hf. :Tveir flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðir


Íslandsbanki hefur lokið útboði vegna stækkunar á tveimur flokkum sértryggðra
skuldabréfa sem voru teknir til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland í mars 2012.
Annars vegar var ISLA CBI 19 flokkurinn stækkaður um ISK 830.000.000 á
ávöxtunarkröfunni 2,35%, og hins vegar var ISLA CBI 24 flokkurinn stækkaður um
ISK 740.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,72%.

Heildarstærð ISLA CBI 19 útgáfunnar er nú orðin ISK 4.300.000.000 og
heildarstærð ISLA CBI 24 útgáfunnar orðin ISK 5.450.000.000. Alls hefur
Íslandsbanki gefið út sértryggð skuldabréf að upphæð ISK 15.490.000.000 frá
fyrstu útgáfu bankans á slíkum bréfum í desember 2011.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fagfjárfesta. Heildareftirspurnin í útboðinu
var ISK 2.160.000.000, en 73% tilboða var tekið að upphæð ISK 1.570.000.000.

Stefnt er á að bréfin verði tekin til viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 14.
mars næstkomandi. Viðskiptavakt fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréfa
Íslandsbanka er á vegum MP banka.

Bréfin eru gefin út í samræmi við lög nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf
þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki
skuldabréfinu skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og
gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunni,
sem einnig tilnefnir sjálfstæðan skoðunarmann til að sinna eftirliti. Skýrslur
um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út
ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka.



Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is  og í síma
    440 3187.
  * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir,
    gudny.helga.herbertsdottir@islandsbanki.is  og í síma 440 3678.


[HUG#1683855]