Útboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 15 0408


Föstudaginn 22. mars kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með tilboðsfyrirkomulagi.

Í þessu útboði verða seld bréf í nýjum tveggja ára flokki ríkisbréfa RIKB 15 0408. Flokkurinn ber 4,50% árlega nafnvexti með vaxtagjalddaga 8. apríl ár hvert. Lokagjalddagi bréfsins er 8. apríl 2015. Nánari lýsing á flokknum fylgir í viðhengi með þessari frétt og frekari upplýsingar er hægt að sjá á www.lanamal.is. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði.

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt.

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu Lánamál ríkisins bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 26. mars 2013. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 27. mars 2013.

Óskað verður eftir skráningu bréfa sem seld verða 22. mars 2013 í NASDAQ OMX á Íslandi þann 2. apríl 2013.

 

SKIPTIÚTBOÐ

Aðilar eiga þess kost í útboðinu að kaupa bréf í RIKB 15 0408 með sölu á RIKB 13 0517, sem fellur á gjalddaga 17. maí nk. Lánamál ríkisins kaupa RIKB 13 0517 á fyrirfram ákveðnu verði þ.e. hreina verðinu 100,28 (106,516986 með áföllum vöxtum m.v. 100 kr. nafnverðseiningu) m.v. uppgjör 27. mars 2013. Til skýringar, jafngildir verðið 4,925% í flötum vöxtum. Andvirði bréfanna ásamt áföllnum vöxtum kemur þá sem greiðsla fyrir kaupum á nýjum bréfum. Þeir sem vilja nota RIKB 13 0517 sem greiðslu í útboðinu þurfa að tilkynna Lánamálum ríkisins það eigi síðar en kl. 14:00 þriðjudaginn 26. mars 2013.

Fjárfestar sem eiga bréf í RIKB 13 0517 og hafa áhuga á að endurfjárfesta í öðrum ríkisbréfum eru sérstaklega hvattir til þess að taka þátt í þessu útboði með því að hafa samband við næsta banka.


Attachments

Utbodsskilmalar_13mar22.pdf Lýsing á RIKB 15 0408.pdf Frett_13mars19.pdf