Í mars flutti félagið 145 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 22% fleiri en í mars á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára í mars nam 31%. Sætanýting var 79,3% og dróst saman um 1,7 prósentustig á milli ára.
Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 26 þúsund í mars sem er fækkun um 11% á milli ára. Framboð félagsins í mars var dregið saman um 10% samanborið við mars 2012. Sætanýting nam 74,3% og jókst um 0,5 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 9% á milli ára. Fraktflutningar drógust saman um 2% frá því á síðasta ári. Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 29% miðað við mars á síðasta ári. Herbergjanýting var 72,17samanborið við 70,4% í mars í fyrra.
MILLILANDAFLUG | MAR 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 145.074 | 22% | 358.302 | 18% |
Sætanýting | 79,3% | -1,7 %-stig | 74,2% | -1,1 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) | 526.363 | 31% | 1.368.310 | 24% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | MAR 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 26.037 | -11% | 70.474 | -10% |
Sætanýting | 74,3% | 0,5 %-stig | 70,7% | 2,1 %-stig |
Framboðnir sætiskm. ('000) | 11.578 | -10% | 31.478 | -12% |
LEIGUFLUG | MAR 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 90,0% | 6,7 %-stig | 84,3% | -2,8 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.275 | -9% | 7.225 | -11% |
FRAKTFLUTNINGAR | MAR 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 14.447 | 14% | 39.508 | 8% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 8.000 | -2% | 22.509 | 2% |
HÓTEL | MAR 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 22.940 | 25% | 66.600 | 23% |
Seldar gistinætur | 16.671 | 29% | 41.891 | 25% |
Herbergjanýting | 72,7% | 2,3 %-stig | 62,9% | 1,1 %-stig |
* BR.(%) = % breyting á milli ára
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010