NASDAQ OMX Iceland samþykkir töku hluta í Tryggingamiðstöðinni hf. til viðskipta á Aðalmarkaði að uppfylltum skilyrðum um dreifingu hlutafjár


NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöllin) hefur samþykkt umsókn stjórnar Tryggingamiðstöðvarinnar hf. (TM) (kt. 660269-2079) um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Samþykkið er háð því að félagið uppfylli skilyrði reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga í NASDAQ OMX Iceland hf. um dreifingu hlutafjár fyrir skráningardag. Gert er ráð fyrir að fyrsti viðskiptadagur með hluti TM á markaði verði 8. maí nk., en Kauphöllin mun tilkynna um fyrsta viðskiptadag með minnst eins viðskiptadags fyrirvara.