Islandsbanki hf. : Óverðtryggður flokkur sértryggðra skuldabréfa stækkaður


Íslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á einum útistandandi flokki
sértryggðra skuldabréfa sem skráð er á NASDAQ OMX Iceland.  Óverðtryggða 3 ára
útgáfan ISLA CB 15, var stækkuð um ISK 780.000.000 á ávöxtunarkröfunni 6,3%.

Heildarstærð ISLA CB 15 útgáfunnar er nú orðin ISK 2.520.000.000. Alls hefur
Íslandsbanki gefið út fjóra flokka sértryggðra skuldabréfa samtals að upphæð ISK
16.270.000.000 frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum bréfum í desember 2011.

Heildareftirspurnin í útboðið var ISK 880.000.000 en 89% tilboða var tekið.
Stefnt er á að bréfin verði tekin til viðskipta í NASDAQ OMX Iceland þann 10.
maí næstkomandi. Viðskiptavakt fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréf
Íslandsbanka er á vegum MP banka.

Bréfin eru gefin út í samræmi við lög nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf
þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki
skuldabréfunum skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og
gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunum,
sem einnig tilnefnir sjálfstæðan skoðunarmann til að sinna eftirliti. Skýrslur
um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út
ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is  og í síma
    440 3187.
  * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir,
    gudny.helga.herbertsdottir@islandsbanki.is  og í síma 440 3678.


[HUG#1699281]