Í apríl flutti félagið 148 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 9% fleiri en í apríl á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 20% og sætanýting var 76,2% samanborið við 81,3% á sama tíma í fyrra. Hlutfallslega aukið framboð á lengri leiðum félagsins, mælt í sætiskílómetrum (ASK), hefur þau áhrif að sætisnýtingarhlutfall lækkar.
Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 25 þúsund í apríl og fækkar um 5% á milli ára. Framboð félagsins í apríl var dregið saman um 10% samanborið við apríl 2012. Sætanýting nam 69,3% og jókst um 3,3 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 7% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 5% frá því á síðasta ári. Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 16% miðað við apríl á síðasta ári. Herbergjanýting var 66,9% samanborið við 66,8% í apríl í fyrra.
MILLILANDAFLUG | APR 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 148.074 | 9% | 506.373 | 15% |
Sætanýting | 76,2% | -5,1 %-stig | 74,7% | -2,4 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) | 564.004 | 20% | 1.933.239 | 23% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | APR 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 25.428 | -5% | 95.902 | -9% |
Sætanýting | 69,3% | 3,3 %-stig | 70,3% | 2,4 %-stig |
Framboðnir sætiskm. ('000) | 12.192 | -10% | 43.670 | -12% |
LEIGUFLUG | APR 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 90,9% | -0,8 %-stig | 84,1% | -4,1 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.384 | -7% | 9.609 | -10% |
FRAKTFLUTNINGAR | APR 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 14.532 | 11% | 54.052 | 9% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 7.610 | 5% | 30.119 | 2% |
HÓTEL | APR 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 22.200 | 16% | 88.800 | 21% |
Seldar gistinætur | 14.848 | 16% | 56.739 | 23% |
Herbergjanýting | 66,9% | 0,1 %-stig | 63,9% | 0,8 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010