Hluthafafundur í Vátryggingafélagi Íslands hf. verður haldinn 30. maí 2013


Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf. boðar til hluthafafundar í félaginu og verður hann haldinn á Grand hótel Reykjavík, Sigtúni 38, 105 Reykjavík, í fundarsalnum Hvammi á 1. hæð, fimmtudaginn 30. maí 2013 og hefst hann stundvíslega kl. 16:00.

Dagskrá fundarins er svohljóðandi:

1.     Kosning stjórnar

2.     Önnur mál

Hluthafa er heimilt að sækja fund ásamt ráðgjafa, sem hvorki hefur málfrelsi, tillögurétt né atkvæðisrétt. Hluthafa er þó heimilt að gefa ráðgjafa sínum orðið fyrir sína hönd. Einnig getur hluthafi falið umboðsmanni sínum að sækja fyrir sig fund og skal hann þá leggja fram skriflegt og dagsett umboð.

Hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin fyrir á hluthafafundi, ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til stjórnar félagsins, (stjorn@vis.is), með það miklum fyrirvara að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins.

Atkvæðagreiðslur verða einungis skriflegar á fundinum ef einhver atkvæðisbærra fundarmanna krefst þess. Þó skal stjórnarkjör jafnan vera skriflegt ef tillögur koma fram um fleiri stjórnarmenn en kjósa skal.  Stjórnarkjör fer fram skv. hlutfallskosningu eftir samþykktum félagsins.  Vakin er athygli á ákvæðum 16. gr. samþykkta félagsins um stjórnarkjör þar sem fjallað er um kynjakvóta.

Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthafar geta óskað eftir því að fá atkvæðaseðla senda til sín og skal skrifleg beiðni þar um hafa borist á heimili félagsins a.m.k. fimm dögum fyrir auglýstan hluthafafund. Einnig geta hluthafar vitjað atkvæðaseðla sína á heimili félagsins frá sama tíma eða greitt þar atkvæði.

Hluthafafundur er lögmætur án tillits til fundarsóknar ef hann er löglega boðaður.

Endanleg dagskrá verður birt á vefsíðu félagsins og mun liggja frammi á skrifstofu þess að Ármúla 3, 108 Reykjavík, viku fyrir hluthafafundinn.

Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða lagðar fram hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir hluthafafund. Upplýsingarnar verða auk þess aðgengilegar á vefsíðu félagsins, www.vis.is/fjarfestar.

Fundargögn verða afhent á fundarstað.

 

Reykjavík, 7. maí 2013.

Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf.


Attachments

Hluthafafundur í VÍS 2013 05 30_fundarboð.pdf