Hluthafafundur Vátryggingafélags Íslands hf. 30. maí 2013

Endanleg dagskrá


Hluthafafundur í Vátryggingafélagi Íslands hf. verður haldinn fimmtudaginn 30. maí 2013.

Fundurinn fer fram á Grand hótel Reykjavík, Sigtúni 38, 105 Reykjavík, í fundarsalnum Hvammi á 1. hæð og hefst hann stundvíslega kl. 16:00.

Endanleg dagskrá fundarins er svohljóðandi:

1. Kosning stjórnar

2. Önnur mál

Varðandi framboð til stjórnar bendir stjórn félagsins á að undirrituðu framboðseyðublaði ber að skila í síðasta lagi fimm dögum fyrir hluthafafund. Eyðublað vegna framboðs til stjórnar má finna á vefsíðu félagsins, www.vis.is/fjarfestar/hluthafafundir. Senda skal undirritað framboðseyðublað á tölvupóstfangið stjorn@vis.is eða skila á skrifstofu félagsins að Ármúla 3 í Reykjavík fyrir fyrrgreindan tíma.

Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða lagðar fram hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir hluthafafund. Upplýsingarnar verða auk þess aðgengilegar á vefsíðu félagsins, www.vis.is/fjarfestar/hluthafafundir.