Islandsbanki hf. : Fyrsta árshlutauppgjör 2013 birt þann 30. maí


Íslandsbanki mun birta fyrsta árshlutauppgjör 2013 fyrir opnun markaða
fimmtudaginn 30. maí 2013.

Síðar þann dag kl. 13.00 mun bankinn bjóða markaðsaðilum upp á símafund.
Fundurinn fer fram á ensku og farið verður yfir helstu atriði í íslenskum
efnahagsmálum og afkomu bankans.

Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islansbanki.is.
Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2
tímum fyrir fundinn.

Dagskrá

  * 13.00 - Efnahagsmál á Íslandi
  * 13.15 -1Q2013 árshlutauppgjör Íslandsbanka
  * 13.45 - Spurningar og svör

Hægt verður að nálgast gögn fyrir uppgjörið og kynninguna á
www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.

Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér:
http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187.
  * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir,
    gudny.helga.herbertsdottir@islandsbanki.is  og í síma 440 3678.


[HUG#1704102]