LEIÐRÉTTING: Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2013


Tilkynning sem birt var 23.05.2013 kl. 14:02:57 (CET) innihélt rangt eiginfjárhlutfall. Rétt eiginfjárhlutfall er 23,9% en í fyrri tilkynningu var gefið upp að hlutfallið væri 24,1%. Hér má nálgast uppfærða fréttatilkynningu með réttu eiginfjárhlutfalli.

Hagnaður Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2013 nam 1,4 milljarði króna eftir skatta samanborið við 4,5 milljarða króna á sama tímabili á árinu 2012. Arðsemi eigin fjár var 4,3% samanborið við 16,5% á sama tímabili árið 2012. Arðsemi af kjarnastarfsemi var 6,3% en var 12,5% á sama tíma árið 2012. Heildareignir námu 907,5 milljörðum króna samanborið við 900,7 milljarða króna í árslok 2012.

Eiginfjárhlutfall bankans í lok tímabilsins var 23,9% en í lok árs 2012 var það 24,3%.  


Helstu atriði árshlutareikningsins:

  • Hagnaður eftir skatta nam 1,4 mö.kr. samanborið við 4,5 ma.kr. á sama tímabili 2012.
  • Hagnaður af kjarnastarfsemi nam 2,1 ma.kr. samanborið við 3,6 ma.kr. á sama tímabili 2012.
  • Rekstrartekjur lækka milli ára vegna gengismunar og námu 8,8 mö.kr. samanborið við 10,9 ma.kr. á sama tímabili 2012.
  • Hreinar vaxtatekjur námu 6,3 mö.kr. og eru nánast óbreyttar frá sama tíma 2012.
  • Hrein virðisbreyting á útlánum nemur 0,3 mö.kr. og skýrist af niðurfærslum og töpuðum útlánum sem nema 2,7 mö.kr. og virðisaukningu sem nemur 2,4 mö.kr.
  • Arðsemi eigin fjár var 4,3% en var 16,5% á sama tímabili 2012. Arðsemi af kjarnastarfsemi var 6,3% samanborið við 12,5% á sama tíma 2012.
  • Vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna var 3,1% á tímabilinu sem er óbreytt frá sama tíma 2012.
  • Kostnaðarhlutfall á tímabilinu var 72,6% en var 53,1% á sama tímabili 2012. Hátt hlutfall nú skýrist m.a. af varúðarfærslu vegna sektar samkeppnisyfirvalda á Valitor. Kostnaðarhlutfall af kjarnastarfsemi nam 66,7% samanborið við 51,4% á sama tímabili 2012.
  • Útlán til viðskiptavina í lok tímabilsins námu 565,5 mö.kr. og eru nánast óbreytt frá áramótum.
  • Heildareignir námu 907,5 mö.kr., samanborið við 900,7 ma.kr. í árslok 2012.
  • Eigið fé bankans í lok tímabilsins var 132,3 ma.kr. en nam 130,9 mö.kr. í lok árs 2012.

 

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Uppgjör fyrsta ársfjórðungs er nokkuð undir  væntingum. Þrátt fyrir að vaxtatekjur og þóknanatekjur séu í meginatriðum í takt við áætlanir hafa breytingar á verðmæti lána og sérstaklega gengisbreytingar veruleg neikvæð áhrif á uppgjörið. Einnig er 500 milljón króna sekt sem Samkeppniseftirlitið lagði á Valitor færð til gjalda á tímabilinu og hefur það ennfremur neikvæð áhrif á arðsemi bankans. Það er þó mikilvægt að áfram er góður stöðugleiki í grunnstarfsemi bankans og undirliggjandi efnahag. Eiginfjárhlutall bankans er tæplega 24% sem er vel yfir kröfum FME og sýnir góða stöðu bankans.

Á fyrsta fjórðungi ársins lögðum við áherslu á að auka fjölbreytni í fjármögnun bankans. Við héldum áfram sértryggðri skuldabréfaútgáfu hér á landi með útgáfu óverðtryggðra skuldabréfa og Arion banki varð fyrstur íslenskra fjármálafyrirtækja frá árinu 2007 til að gefa út skuldabréf í erlendri mynt þegar bankinn gaf út skuldabréf í norskum krónum. Þetta var ekki stór útgáfa en þeim mun mikilvægari. Það skiptir miklu máli fyrir íslenskt atvinnulíf að helstu fjármálafyrirtæki landsins hafi aðgang að erlendum lánamörkuðum. Þarna var stigið mikilvægt skref í þá átt. Við höfum síðan þá skynjað aukinn áhuga alþjóðlegra lánveitenda á bankanum og þróun mála hér á landi sem er jákvætt.

Upplýsingatækni skipar veigamikinn sess í starfsemi bankans og heildarkostnaði. Nýverið lukum við umfangsmikilli uppfærslu á SAP viðskiptahugbúnaði bankans. Að uppfærslunni, sem tókst í alla staði vel, komu um 40 starfsmenn auk um 20 utanaðkomandi ráðgjafa, innlendra sem erlendra. Við áætlum að rúmlega sex þúsund vinnustundir hafi farið í verkið á undanförnum mánuðum og að kostnaður muni í heild nema rúmum 230 milljónum króna. Er hluti þess kostnaðar færður til gjalda á ársfjórðungnum. Með uppfærslunni eru SAP viðskiptakerfi bankans betur aðlöguð að starfsemi Arion banka, gagnaöryggi aukið sem og öll skilvirkni kerfanna.“

 

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, samskiptasviði Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.


Attachments

Árshlutauppgjör Arion banka 31.3.2013.pdf Afkomutilkynning Arion Banka 1F 2013.pdf