Skiptigengi í gjaldeyrisútboði


Samkvæmt tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. þann 7. maí sl. varðandi gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður 11. júní nk.  kom fram í útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki RIKS 33 0321 yrði birt í lok dags 7. júní.

Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra skal byggjast á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er 108,655808 kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag  14. júní 2013 (ávöxtunarkrafa 2,85%).[1]

Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100).

 


 

 

[1] Hreint verð (e. clean price) er 102,2.

 

 

 


Attachments

Skiptigengi RS33 í gjaldeyrisútb_.11jun.pdf