Í júní flutti félagið um 269 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 10% fleiri en í júní á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 12% og sætanýting var 82,2% samanborið við 82,6% á sama tíma í fyrra. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 15% og voru þeir 51% af heildarfarþegafjölda félagsins í millilandaflugi í júní.
Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 28 þúsund í júní og fækkaði um 15% á milli ára. Framboð félagsins í júní var dregið saman um 20% samanborið við júní 2012. Sætanýting nam 71,1% og jókst um 2,0 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 22% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 10% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 73,6% samanborið við 75,3% í júní í fyrra.
MILLILANDAFLUG | JÚN 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 268.617 | 10% | 967.172 | 14% |
Sætanýting | 82,2% | -0,5 %-stig | 77,5% | -2,1 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) | 963.771 | 12% | 3.614.305 | 20% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | JÚN 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 28.216 | -15% | 149.585 | -10% |
Sætanýting | 71,1% | 2,0 %-stig | 70,6% | 2,3 %-stig |
Framboðnir sætiskm. ('000) | 14.932 | -20% | 69.889 | -14% |
LEIGUFLUG | JÚN 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 100,0% | 0,0 %-stig | 89,0% | -1,7 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.157 | -22% | 14.166 | -11% |
FRAKTFLUTNINGAR | JÚN 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 19.897 | 10% | 91.122 | 9% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 7.860 | 10% | 46.926 | 4% |
HÓTEL | JÚN 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 35.514 | 2% | 147.578 | 14% |
Seldar gistinætur | 26.150 | 0% | 99.664 | 13% |
Herbergjanýting | 73,6% | -1,7 %-stig | 67,5% | -0,2 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010