- Hagnaður eftir skatta nam 18,5 milljónum USD samanborið við 14,3 milljónir USD árið áður.
- EBITDA nam 42,9 milljónum USD samanborið við 28,8 milljónir USD árið áður.
- Heildartekjur jukust um 13%.
- Eiginfjárhlutfall 32% í lok júní.
- Handbært fé frá rekstri 106,4 milljónir USD samanborið við 72,2 milljónir USD árið áður.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri:
„Afkoma Icelandair Group á öðrum ársfjórðungi var góð og batnaði á milli ára. Hagnaður eftir skatta nam 18,5 milljónum USD og jókst um 4,2 milljónir USD miðað við síðasta ár. Millilandaflugstarfsemi félagsins gengur vel. Framboð var aukið um 17% á milli ára og fjöldi farþega í fjórðungnum nam um 609 þúsund. Framboðsaukningin var mest á N-Atlantshafinu og á þeim markaði jókst fjöldi farþega einnig mest eða um 22%.
Ferðaþjónustan á Íslandi hefur notið góðs af fjölgun ferðmanna til landsins, en í ár stefnir í metfjölda þeirra er sækja Ísland heim. Fraktstarfsemi félagsins hefur einnig gengið vel en aukin áhersla á flutninga með frakt í áætlunarflugi í stað leiguflugsverkefna hefur skilað góðum árangri.
Í byrjun árs gáfum við út EBITDA spá fyrir árið 2013 sem nam 115-120 milljónum USD og var sú spá uppfærð í 122-127 milljónir USD þegar uppgjör fyrsta ársfjórðungs var birt. Fyrstu sex mánuði ársins hefur reksturinn gengið vel og ytri aðstæður hafa þróast á hagfelldan hátt fyrir félagið. Eldsneytisverð hefur verið lægra en gert var ráð fyrir í spám félagsins og þróun helstu gjaldmiðla hefur sömuleiðis verið hagfelld ef horft er á forsendur í spám félagsins. Bókunarstaða fyrir seinni helming ársins er góð og miðað við fyrirliggjandi forsendur er gert ráð fyrir að EBITDA ársins verði 140-145 milljónir USD."