Icelandair Hotels, dótturfélag Icelandair Group, opnar nýtt hótel í miðbæ Reykjavíkur


Icelandair Hotels, dótturfélag Icelandair Group, mun opna nýtt hótel í miðbæ Reykjavíkur sumarið 2015.   Hótelið mun heita Icelandair Hótel Reykjavík Cultura. Hótelið verður staðsett á svokölluðum Hljómalindarreit, við Smiðjustíg og Hverfisgötu, en hótelið verður jafnframt með nýstárlegan garð milli Hverfisgötu og Laugavegar, þar sem aðstaða verður fyrir margskonar viðburði og skemmtanir.  Hið nýja hótel mun hýsa 142 herbergi ásamt aðstöðu til veitingareksturs bæði úti og inni. Miðlæg staðsetning og nálægð við Hörpu og helstu viðburði borgarinnar er mikill kostur þessa nýja hótels, en aukinn áhugi á ráðstefnuhaldi í Reykjavíkurborg í framhaldi af markvissri sókn á ráðstefnumarkaði gefur tilefni til að auka framboð gistingar í hærri gæðaflokki í miðbænum.

Verkefnið verður unnið í nánu samstarfi Icelandair Hotels og Þingvangs, sem jafnframt er lóðareigandi og mun sjá um framkvæmdina alla.  Icelandair Hotels mun gera 25 ára leigusamning um hótelið.

   

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group: sími 665 8801
Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hotels, sími: 840 0140