VIÐSKIPTAYFIRLIT JÚLÍ 2013 - NASDAQ OMX ICELAND


Reykjavík, 1. ágúst, 2013 – NASDAQ OMX gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega frá kauphöllum sínum á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti NASDAQ OMX Iceland fyrir júlí eru eftirfarandi: 

  • Viðskipti með hlutabréf í júlí námu 12.129 milljónum eða 527 milljónum á dag.  Þetta er 308% hækkun á milli ára, samanborið við 129 milljóna króna veltu á dag í júlí 2012, og 35% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í júnímánuði námu 806 milljónum á dag). 
  • Mest voru viðskipti með hlutabréf Icelandair Group (ICEAIR), 3.159 milljónir, Tryggingamiðstöðvarinnar (TM), 1.807 milljónir, Vátryggingafélags Íslands (VIS), 1.707 milljónir, og Marel (MARL), 1.522 milljónir.    
  • Úrvalsvísitalan (OMXI6) hækkaði um 5% milli mánaða og stendur nú í 1.181 stigi.
  • Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina 30% (27,1% á árinu), Arion banki með 22,2% (14,4% á árinu), og Landsbankinn með 17,3% (23,2% á árinu).
  • Viðskipti með skuldabréf námu 98 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 4,3 milljarða veltu á dag. Þetta er 14% lækkun á milli ára, samanborið við 5 milljarða veltu á dag í júlí 2012, og 40% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í júní námu 7,2 milljörðum á dag).
  • Alls námu viðskipti með ríkisbréf 60,4 milljörðum en viðskipti með íbúðabréf námu 30,4 milljörðum.
  • Í júlímánuði var Landsbankinn með mestu hlutdeildina 23,3% (22,4% á árinu), Íslandsbanki með 20,5% (20,2% á árinu) og MP Banki með 19,1% (19,5% á árinu).

Í lok júní voru hlutabréf 17 félaga skráð á Aðalmarkaði og First North Iceland og nemur heildarmarkaðsvirði þeirra 488 milljörðum króna (samanborið við 321 milljarð í júlí 2012).

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá viðhengi og http://nordic.nasdaqomxtrader.com/newsstatistics/

 

#

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu NASDAQ OMX. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem NASDAQ OMX hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu NASDAQ OMX á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. Engin trygging er fyrir því að verðbréfaeftirlitið muni veita NASDAQ OMX aðila það vald og leyfi sem hann kynni að sækja.

About NASDAQ OMX Group

NASDAQ OMX Group, Inc., frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, eflir efnahagslíf og býður upp á framsæknar tæknilausnir sem spanna allan viðskiptaferilinn – frá áhættustýringu til viðskipta, eftirlits og uppgjörs. Við starfrækjum 24 verðbréfamarkaði, 3 uppgjörshús og 6 verðbréfaskráningar í Bandaríkjunum og Evrópu, sem þjónusta viðskipti með hlutabréf, valrétti, skuldabréf, afleiður, hrávörur, framtíðarsamninga og samsettar vörur. Kerfi NASDAQ OMX geta afgreitt meira en 1 milljón skilaboða á sekúndu á hraða sem er innan við 80 míkrósekúndur á hvert skeyti og státa af 99,999% uppitíma. Þau þjóna meira en 70 kauphöllum í 50 þróuðum löndum og nýmarkaðslöndum og afgreiða 1 af hverjum 10 verðbréfaviðskiptum í heiminum. Verðlaunuð markaðsgögn og vísitölur okkar víðsvegar um heim eru lykilviðmið í fjármálageiranum. Við erum heimili 3.300 fyrirtækja með heildarmarkaðsvirði í kringum 6 milljarða Bandaríkjadala, hvers nýsköpun móta samfélagið okkar, og veitum hugmyndum framtíðarinnar aðgang að fjármagni í dag. Velkomin þangað sem heimurinn tekur daglega stórt stökk fram á við. Velkomin til NASDAQ OMX aldarinnar. Nánari upplýsingar er að finna á www.nasdaqomx.com. Fylgist með okkur á Facebook (http://www.facebook.com/NASDAQ) og Twitter (http://www.twitter.com/nasdaqomx). (Auðkenni: NDAQ og í S&P 500 vísitölunni).

         Magnús Harðarson
         magnus.hardarson@nasdaqomx.com
         525 2853


Attachments

2013_0801_Viðskiptayfirlit júlí 2013.pdf