Í júlí flutti félagið 306 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 11% fleiri en í júlí á síðasta ári. Þetta er í fyrsta skipti sem félagið flytur yfir 300 þúsund farþega í einum mánuði. Framboðsaukning á milli ára nam 12% og sætanýting var 86,2% samanborið við 85,4% á sama tíma í fyrra. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 15,7% og voru þeir 53% af heildarfarþegafjölda félagsins í millilandaflugi í júlí.
Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru rúmlega 32 þúsund í júlí og fækkaði um 10% á milli ára. Framboð félagsins í júlí var dregið saman um 15% samanborið við júlí 2012. Sætanýting nam 73,8% og jókst um 6,5 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 11% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 9% frá því á síðasta ári. Fjöldi seldra gistinótta á hótelum félagsins jókst um 4% milli ára. Herbergjanýting var 89,2% samanborið við 88,4% í júlí í fyrra.
MILLILANDAFLUG | JÚL 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 306.241 | 11% | 1.273.361 | 13% |
Sætanýting | 86,2% | 0,8 %-stig | 79,4% | -1,6 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 1.032,3 | 12% | 4.646,6 | 18% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | JÚL 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 32.495 | -10% | 181.864 | -10% |
Sætanýting | 73,8% | 6,5 %-stig | 71,2% | 3,2 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 20,2 | -15% | 90,1 | -14% |
LEIGUFLUG | JÚL 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 100,0% | 5,0 %-stig | 90,4% | -0,9 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.423 | -11% | 16.589 | -11% |
FRAKTFLUTNINGAR | JÚL 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 21.151 | 13% | 112.272 | 9% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 7.381 | 9% | 54.307 | 5% |
HÓTEL | JÚL 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 41.416 | 3% | 189.032 | 11% |
Seldar gistinætur | 36.923 | 4% | 136.587 | 11% |
Herbergjanýting | 89,2% | 0,8 %-stig | 72,3% | -0,4 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010