Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2013

Kynningarfundur 30. ágúst 2013


Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2013 eftir lokun markaðar fimmtudaginn 29. ágúst 2013.

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Gylfi Sigfússon, forstjóri, og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, munu kynna uppgjör annars ársfjórðungs og fyrstu sex mánaða 2013.    

Fundurinn verður haldinn föstudaginn 30. ágúst 2013 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst kl. 8:30. Boðið verður uppá morgunverð frá kl. 8:15.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.