Heildartekjur námu 6 milljónum evra.
Rekstrartekjur fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) reyndust 3,3 milljónir evra.
Eiginfjárhlutfall var 45,9% 30.júní s.l.
Heildartekjur félagsins jukust um 14% en kostnaður lækkaði um 7% og því jókst EBITDA félagsins um tæplega eina milljón evra miðað við sama tímabil 2012. Afskriftir námu 3,8 milljónum evra og fjármagnskostnaður reyndist 4 milljónir evra þar af 1,8 milljónir í reiknaðar gengisbreytingar. Tap félagsins varð 4,5 milljónir evra.
Frekari upplýsingar:
Ómar Benediktsson 585 9701