Íslandsbanki mun birta afkomu fyrri árshelmings 2013 fyrir opnun markaða miðvikudaginn 28. ágúst 2013. Síðar um daginn munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á opnum fjárfestafundi og svara fyrirspurnum. * Tími: 16.00 * Staðsetning: Íslandsbanki, Kirkjusandur 2, 5. hæð * Skráning: Vegna aðgangsmála er nauðsynlegt að gestir skrái sig á afkomukynninguna hér: http://www.islandsbanki.is/afkomufundur * Fundurinn fer fram á íslensku Hægt verður að nálgast fundargögn frá kynningunni á www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl. Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér: http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, gudny.helga.herbertsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 3678. [HUG#1724167]