Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 15 0408 og RIKB 31 0124 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:
RIKB 15 0408:
Alls bárust 5 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.300 m.kr. að nafnverði. 3 tilboðum var tekið fyrir 700 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,600 (4,09% ávöxtunarkröfu).
RIKB 31 0124:
Alls bárust 22 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 4.000 m.kr. að nafnverði. 18 tilboðum var tekið fyrir 3.200 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 98,600 (6,63% ávöxtunarkröfu).
Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 27. ágúst. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 28. ágúst 2013.