Skiptigengi í gjaldeyrisútboði


Samkvæmt tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. þann 23. júlí sl. varðandi gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður 3. september nk.  kom fram í útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki RIKS 33 0321 yrði birt í lok dags 30. ágúst.

 

Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra skal byggjast á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er 111,403610 kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag  6. september 2013 (ávöxtunarkrafa 2,75%).1

Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100).

  
 

 

1 Hreint verð (e. clean price) er 103,8.

 

 

 


Attachments

Skiptigengi RS33 í gjaldeyrisútb_.3sept2013.pdf