Reykjavíkurborg - RVK 19 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við útgáfuáætlun 2013 að efna til útboðs miðvikudaginn 4. september. Eingöngu verður efnt til útboðs í flokki RVK 19 1 að þessu sinni. Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 milljónir króna að nafnvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð bjóðast á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð.

Heildarstærð RVK 19 1 fyrir þetta útboð nemur alls 1.905 m.kr. að nafnvirði.  

Heimild til lántöku á árinu 2013 er 3.299 m.kr.

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 9. september 2013.

Samkvæmt aðalmiðlarasamningi Reykjavíkurborgar við Arion banka, Íslandsbanka, Landsbanka, MP Banka og Straum fjárfestingarbanka, hafa aðalmiðlarar einir rétt á tilboðsgerð.

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðslýsingu í fylgiskjali:

 

Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321


Attachments

Reykjavíkurborg Utboðslysing RVK 19 1.pdf Utgafulysing_skuldabrefa RVK 19 1.pdf