Í ágúst flutti félagið yfir 300 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 11% fleiri en í ágúst á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 11% og sætanýting var 85,6% samanborið við 84,9% á sama tíma í fyrra. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 16,4% og voru þeir 52% af heildarfarþegafjölda félagsins í millilandaflugi í ágúst.
Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru tæplega 33 þúsund í ágúst og fækkaði um 12% á milli ára. Framboð félagsins í ágúst var dregið saman um 13% samanborið við ágúst 2012. Sætanýting nam 73,5% og jókst um 3,5 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 10% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 12% frá því á síðasta ári. Fjöldi seldra gistinátta á hótelum félagsins jókst um 2% milli ára. Herbergjanýting var 88,2% samanborið við 88,1% í ágúst í fyrra.
MILLILANDAFLUG | ÁGÚ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 300.089 | 11% | 1.573.395 | 12% |
Sætanýting | 85,6% | 0,7 %-stig | 80,5% | -1,2 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 1.029,2 | 11% | 5.676,7 | 17% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | ÁGÚ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 32.935 | -12% | 214.804 | -10% |
Sætanýting | 73,5% | 3,5 %-stig | 71,7% | 3,3 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 20,7 | -13% | 110,8 | -14% |
LEIGUFLUG | ÁGÚ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 90,9% | -1,1 %-stig | 90,5% | -0,9 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.512 | -10% | 19.102 | -11% |
FRAKTFLUTNINGAR | ÁGÚ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 21.102 | 12% | 133.385 | 10% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 7.118 | 12% | 61.462 | 5% |
HÓTEL | ÁGÚ 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 34.535 | 2% | 223.567 | 10% |
Seldar gistinætur | 30.459 | 2% | 167.046 | 9% |
Herbergjanýting | 88,2% | 0,1 %-stig | 74,7% | -0,5 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010