Samkeppniseftirlitið gerir húsleit hjá Eimskipafélagi Íslands


Það tilkynnist hér með að Samkeppniseftirlitinu hefur verið veitt heimild til húsleitar á starfstöðvum Eimskipafélags Íslands hf. og hjá dótturfélögunum Eimskip Ísland ehf. og TVG Zimsen ehf. Húsleitin er gerð vegna rannsóknar á ætluðum brotum á 10. og 11. gr. samkeppnislaga.