Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 22 1026


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 22 1026 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.

 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 22 1026:

Alls bárust 35 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 10.200 m.kr. að nafnverði. 19 tilboðum var tekið fyrir 6.400 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 104,800 (6,53% ávöxtunarkröfu).
 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða fram til kl. 14:00 þriðjudaginn 24. september. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 25. september 2013.


Attachments

NidurstodurRIKB_20.sept.2013.pdf