Áhersla á niðurgreiðslu skulda Orkuveitunnar

Fjárhagsáætlun 2014 og fimm ára áætlun 2015-2019 samþykktar í stjórn | Áfram sparnaður í rekstri | Stöðugleiki í rekstrartekjum | Engar stökkbreytingar eftir gildistíma Plansins


Reykjavík, 2013-09-25 18:28 CEST (GLOBE NEWSWIRE) --

Orkuveita Reykjavíkur hyggst á næstu árum greiða skuldir fyrirtækisins niður um 80,3 milljarða króna samkvæmt fjárhagsáætlunum sem samþykktar hafa verið í stjórn fyrirtækisins. Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 og langtímaáætlun fyrir árin 2015 til og með 2019 er áhersla lögð á áframhaldandi aðhald í rekstrinum meðan staðinn er vörður um grunnþjónustu fyrirtækisins. Áætlunin er í samræmi við Plan fyrirtækisins og eigenda, frá árinu 2011. Engin stakkaskipti verða í starfseminni eftir að tímabili þess lýkur, í árslok 2016.

Sparnaður í rekstri Orkuveitunnar hefur skilað góðum árangri undanfarin ár og telja stjórnendur fyrirtækisins að núverandi umfang henti viðfangsefnum þess. Orkuveitan rekur vatnsveitur, hitaveitur, rafmagnsveitur og fráveitur í um 20 sveitarfélögum auk þess að framleiða orku í fjórum virkjunum. Fyrirhugaðar fjárfestingar á næstu árum eru einkum í veitukerfum en líka í umhverfisverkefnum við virkjanirnar tvær á Hengilssvæðinu.

Eins og ákveðið var með Planinu, vorið 2011, er gert ráð fyrir að gjaldskrár Orkuveitunnar fylgi verðlagi. Á árunum 2005 til 2010 rýrnuðu gjaldskrár fyrir rafmagn og heitt vatn um u.þ.b. þriðjung. Aðrar forsendur fjárhagsáætlunar eru í samræmi við þjóðhagsspá. Ljóst er að þróun ytri þátta, svo sem gengis, vaxta og álverðs, getur raskað þeim áformum sem í þeim birtast. Þung skuldabyrði í erlendum gjaldmiðlum gerir fyrirtækið viðkvæmara fyrir sveiflum þessara þátta, jafnvel þótt brugðist sé við með áhættuvörnum.

Viðfest Fjárhagsáætlun Orkuveitu Reykjavíkur 2014 og fimm ára áætlun 2015 – 2019, sem stjórn Orkuveitunnar samþykkti föstudaginn 20. september, fer nú til umfjöllunar hjá Reykjavíkurborg sem hluti af fjárhagsáætlunum samstæðu Reykjavíkurborgar.

 

         Nánari upplýsingar:
         Bjarni Bjarnason
         forstjóri
         516 7707


Attachments

Orkukveita Reykjavíkur fjárhagsáætlun 2014-2019.pdf