Í september flutti félagið yfir 215 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 9% fleiri en í september á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 15% og sætanýting var 78,1% samanborið við 81,1% á sama tíma í fyrra. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 15,4% og voru þeir 51% af heildarfarþegafjölda félagsins í millilandaflugi í september.
Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 25 þúsund í september og fækkaði um 13% á milli ára. Framboð félagsins var dregið saman um 14% samanborið við september 2012. Sætanýting nam 71,2% og jókst um 1,2 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 7% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 9% frá því á síðasta ári. Fjöldi framboðinna gistinótta á hótelum félagsins jókst um 3% milli ára. Herbergjanýting var 69,8% samanborið við 76,5% í september í fyrra.
MILLILANDAFLUG | SEP 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 215.205 | 9% | 1.788.903 | 12% |
Sætanýting | 78,1% | -3,0 %-stig | 80,2% | -1,4 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 819,6 | 15% | 6.496,3 | 17% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | SEP 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 24.970 | -13% | 239.774 | -11% |
Sætanýting | 71,2% | 1,2 %-stig | 71,6% | 3,1 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 13,1 | -14% | 123,9 | -14% |
LEIGUFLUG | SEP 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 96,7% | -3,3 %-stig | 91,1% | -1,2 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.389 | -7% | 21.491 | -10% |
FRAKTFLUTNINGAR | SEP 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 18.940 | 9% | 152.325 | 10% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 8.653 | 9% | 70.115 | 6% |
HÓTEL | SEP 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 22.956 | 3% | 246.523 | 9% |
Seldar gistinætur | 16.025 | -6% | 183.084 | 7% |
Herbergjanýting | 69,8% | -6,7 %-stig | 74,3% | -1,0 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010