Lánasjóður sveitarfélaga ohf. – Innköllun LSS 05 4 lokið


Lánasjóður sveitarfélaga ohf. nýtti sér rétt til innköllunar á öllum skuldabréfum í flokki LSS 05 4, ISIN IS0000011575.

Innköllunin miðaðist við 1. október 2012. Skuldin var greidd í samræmi við skilmála bréfanna. Vísað er að öðru leyti til skilmála bréfanna.

Skuldabréfin eru skráð í Nasdaq OMX Iceland hf. og hefur verið óskað eftir afskráningu þeirra.

Nánari upplýsingar veitir:
Egill Skúli Þórólfsson
Sími: 515 4947
e-mail: egill@lanasjodur.is