Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða viðbótarútgáfu úr skuldabréfaútboði


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkum LSS150224 og LSS150434 þann 29. október 2013. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 1. nóvember 2013.

Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. 

Alls bárust tilboð í LSS150224 að nafnvirði ISK 387.000.000 á bilinu 2,35% - 2,46%.  Ákveðið var að afþakka öll tilboð í LSS150224 að þessu sinni.  

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 1.195.000.000 á bilinu 2,76% - 3,00 %.  Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 845.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,80%.   Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í LSS150434 fyrir ISK 31.500.000. Heildarmagn seldra bréfa í flokki LSS150434 nemur því að nafnvirði ISK 876.500.000 á ávöxtunarkröfunni 2,80%. Útistandandi fyrir voru ISK 12.127.852.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 13.004.352.565.

Nánari upplýsingar veitir:
Egill Skúli Þórólfsson
Sími: 515 4947
e-mail: egill@lanasjodur.is