Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2014 og þriggja ára áætlun 2015-2017

Jafnvægi í rekstri og lækkun skulda


Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2014 var lögð fram í bæjarráði Akureyrar í dag. Rekstarafkoma A- og B hluta er áætluð jákvæð um 529,4 milljónir króna eftir fjármagnsliði og tekjuskatt. Jafnframt var lögð fram þriggja ára áætlun áranna 2015-2017.

Fjárhagsáætlunin er sett fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar, Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Félagslegar íbúðir, Fráveita Akureyrabæjar, Strætisvagnar Akureyrabæjar, Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar, Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf., Heilsugæslustöðin á Akureyri, Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar.

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi samstæðunnar mun veltufé frá rekstri nema 2.670,5 millj.kr. og handbært fé frá rekstri 2.660,5 millj.kr. Fjárfestingarhreyfingar nema samtals 1.819 millj.kr. Fjármögnunarhreyfingar munu nema samtals 824,4 millj.kr. Áhersla er lögð á lækkun skulda og er áætlað að afborgun langtímalána nemi 1.179,2 millj.kr. Ný langtímalán eru áætluð 350 millj.kr. Handbært fé sveitarfélagsins í árslok er áætlað 1.398 millj.kr.

Heildarlaunagreiðslur ásamt launatengdum gjöldum hjá samstæðunni eru áætlaðar 10.045,6 millj.kr. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins, í hlutfalli við rekstrartekjur þess, eru áætluð 52,9% Annar rekstrarkostnaður er áætlaður 28,7% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins eru áætlaðar 575 þús.kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 1.040 þús.kr. á hvern íbúa. Árið 2013 eru skatttekjurnar áætlaðar 554 þús.kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 990 þús.kr.

Áætlað er að eignir sveitarfélagsins í efnahagsreikningi 31.12.2014 verði bókfærðar á 38.823,8 millj.kr., þar af eru veltufjármunir 3.489 millj.kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum nemi þá samkvæmt efnahagsreikningi 23.739,9 millj.kr., þar af verði skammtímaskuldir 3.237,8 millj.kr. Áætlað er að heildareignir á hvern íbúa muni nema 2.127 þús. kr. og heildarskuldir 1.195 þús. kr. Veltufjárhlutfallið er áætlað 1,08 í árslok 2014, en er áætlað 1,31 í árlok 2013. Bókfært eigið fé er áætlað að nemi 15.084 millj.kr í árslok 2014. Eiginfjárhlutfall í árslok er áætlað að nemi 39%.

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um fjárhagsáætlun á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hún til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar til fyrri umræðu 5. nóvember og við síðari umræðu þann 17. desember nk.

Meðfylgjandi í pdf-skjali er frumvarp að fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2014, samstæðan ásamt öllum fyrirtækjum bæjarins sem undir áætlunina falla. Auk fjárhagsáætlunarinnar fyrir árið 2014 er birt í frumvarpinu þriggja ára áætlun vegna áranna 2015-2017.

 

Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, fjármálastjóri, í síma 460 1000.


Attachments

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2014 - 2017 fyrri umræða.pdf