Í október flutti félagið um 185 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 8% fleiri en í október á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 12% og sætanýting var 78,1% samanborið við 80,6% á sama tíma í fyrra. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 17,8%.
Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru rúmlega 26 þúsund í október og fækkaði um 8% á milli ára. Framboð félagsins var dregið saman um 3% samanborið við október 2012. Sætanýting nam 71,5% og lækkaði um 5,2 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 11% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 2% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 61,9% samanborið við 67,6% í október í fyrra.
MILLILANDAFLUG | OKT 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 184.854 | 8% | 1.973.491 | 12% |
Sætanýting | 78,1% | -2,5 %-stig | 79,9% | -1,6 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 696,6 | 12% | 7.196,7 | 16% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | OKT 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 26.535 | -8% | 266.309 | -10% |
Sætanýting | 71,5% | -5,2 %-stig | 71,6% | 2,4 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 11,9 | -3% | 135,8 | -13% |
LEIGUFLUG | OKT 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 90,9% | -9,1 %-stig | 91,1% | -2,0 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.283 | -11% | 23.774 | -10% |
FRAKTFLUTNINGAR | OKT 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 17.753 | 10% | 170.035 | 10% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 8.468 | 2% | 78.603 | 6% |
HÓTEL | OKT 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 22.940 | 0% | 269.463 | 8% |
Seldar gistinætur | 14.206 | -8% | 197.290 | 6% |
Herbergjanýting | 61,9% | -5,7 %-stig | 73,2% | -1,4 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010