Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS150434 þann 26. nóvember 2013. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 29. nóvember 2013.

Alls bárust tlboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 1.525.000.000 á bilinu 2,99% - 3,12%. Ákveðið var að taka tlboðum að nafnvirði ISK 200.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,0%. Útistandandi fyrir voru ISK 13.004.352.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 13.204.352.565.

Nánari upplýsingar veitir: Egill Skúli Þórólfsson, Sími: 515 4947, e-mail: egill@lanasjodur.is