Í nóvember flutti félagið um 144 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 10% fleiri en í nóvember á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 15% og sætanýting var 73,8% samanborið við 75,8% á sama tíma í fyrra. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 20,9%.
Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 21 þúsund í nóvember og fækkaði um 17% á milli ára. Framboð félagsins var dregið saman um 17% samanborið við nóvember 2012. Sætanýting nam 71,4% og lækkaði um 1,0 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 2% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 8% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 65,5% samanborið við 61,8% í nóvember í fyrra.
MILLILANDAFLUG | NÓV 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 143.504 | 10% | 2.116.869 | 11% |
Sætanýting | 73,8% | -2,0 %-stig | 79,5% | -1,6 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 578,4 | 15% | 7.775,1 | 16% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | NÓV 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 21.423 | -17% | 287.557 | -11% |
Sætanýting | 71,4% | -1,0 %-stig | 71,5% | 2,1 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 9,2 | -17% | 145,0 | -14% |
LEIGUFLUG | NÓV 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 90,0% | 3,6 %-stig | 91,0% | -1,5 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.096 | -2% | 25.871 | -10% |
FRAKTFLUTNINGAR | NÓV 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 15.199 | 6% | 187.621 | 9% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 8.057 | 8% | 86.663 | 6% |
HÓTEL | NÓV 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 22.200 | 0% | 291.663 | 8% |
Seldar gistinætur | 14.549 | 6% | 211.839 | 6% |
Herbergjanýting | 65,5% | 3,8 %-stig | 72,6% | -0,9 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010