Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 14 0317 og RIKV 14 0616 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag.
Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360).
Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:
RIKV 14 0317:
Alls bárust 9 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.375 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 1.175 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,051 (flatir vextir 3,79%).
RIKV 14 0616:
Alls bárust 5 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.125 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 1.025 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,071 (flatir vextir 3,89%).