Útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir fyrri hluta árs 2014


Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2014 kemur fram að Reykjavíkurborg áætlar lántökur að fjárhæð 2.180 mkr vegna framkvæmda.

Stærð skuldabréfaflokksins RVK 09 1 er 17.190 mkr að nafnverði og stærð skuldabréfaflokksins RVK 19 1 er 3.115 mkr að nafnverði.

Borgarráð samþykkti á fundi sínum þann 19. desember eftirfarandi tillögu borgarstjóra: „Borgarráð samþykkir heimild til fjármálastjóra að undirbúa, á grundvelli samþykktar fjárhagsáætlunar 2014, lántökur á árinu 2014 fyrir allt að 2.180 milljónir króna. Lántakan verði framkvæmd með stækkun á verðtryggðum skuldabréfaflokkum Reykjavíkurborgar RVK 19 1 og RVK 09 1. Fjármálastjóra verði falið að ákveða m.t.t. markaðsaðstæðna hverju sinni hvort boðið verði út í RVK 19 1, RVK 09 1 eða báðum flokkum samtímis.

Janúar–júní 2014 verði skuldabréfaútboð á eftirfarandi dögum: 15. janúar, 5. febrúar, 5. mars, 9. apríl, 7. maí og 11. júní.“

Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi a.m.k 1 virkum degi fyrir útboð.

Reykjavíkurborg áskilur sér allan rétt til að víkja frá áætlun þessari og mun þá tilkynna um breytingar þar að lútandi í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi

 

 

Nánari upplýsingar gefur:

Birgir Björn Sigurjónsson

Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar

Sími: 411-1111