Birting uppgjörs 4. ársfjórðungs 2013


Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung ársins 2013, fimmtudaginn 6. febrúar 2014. Opinn kynningarfundur verður haldinn föstudaginn 7. febrúar 2014 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2. Kynningin hefst kl. 16:30 í sal F+G. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, munu kynna afkomu félagsins og svara spurningum ásamt helstu stjórnendum.

Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is