Endanleg dagskrá hluthafafundar Regins hf. 11. febrúar 2014


Stjórn Regins hf. boðar til hluthafafundar í félaginu og verður hann haldinn í Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í fundasalnum Ríma, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 11. febrúar 2014 og hefst stundvíslega kl. 16:00.

Dagskrá fundarins er svohljóðandi:

1.    Tillaga um heimild til stjórnar til að hækka hlutafé félagsins um 128.700.000 kr. að nafnvirði með breytingu á samþykktum félagsins sem felst í eftirfarandi viðbót við 4. gr. samþykkta félagsins:

„Stjórn félagsins er heimilt að hækka hlutafé félagsins um 128.700.000 kr. að nafnverði. Lögbundinn forgangsréttur hluthafa gildir ekki um hið nýja hlutafé. Stjórninni skal heimilt að ráðstafa hlutafjárhækkuninni sem greiðslu fyrir hlutafé í Klasa fasteignum ehf. á genginu 13,63 krónur á hlut, í samræmi við kaupsamning þar að lútandi dags. 21. desember 2013. Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar. Framangreind heimild stjórnar Regins hf. rennur út þann 31.desember 2014“

2.    Önnur mál.

Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu eftir að því hefur verið framvísað við afhendingu fundargagna eða eftir setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er.

Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á hluthafafundinum, ef hann gerir skriflega kröfu um það til stjórnar með það löngum fyrirvara, að unnt sé samkvæmt samþykktum þessum að taka málið á dagskrá fundarins. Nánar um heimildir hluthafa til að fá mál tekin til meðferðar á fundinum vísast til samþykkta félagsins sem finna má á heimasíðu þess.

Hluthafafundurinn er lögmætur ef löglega er til hans boðað, án tillits til þess hversu margir sækja hann skv. 2. mgr. 16. gr. sbr.  14. gr. samþykkta félagsins.

Ofangreind dagskrá og tillögur með greinargerð ásamt öðrum gögnum sem tillögunni kunna að fylgja eru hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins í Smáralind, 3. hæð, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, frá og með 4. febrúar 2014. Upplýsingarnar eru auk þess aðgengilegar á heimasíðu félagsins, www.reginn.is.

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð

http://streymi.nyherji.is/Mediasite/Play/f49193a2d42e4be790b25c63bd675bc91d

Kópavogur, 4. febrúar 2014

Stjórn Regins hf.


Attachments

Endanleg dagskrá - Hluthafafundur Regins hf. - 11022014.pdf Yfirlýsing endurskoðanda vegna skýrslu stjórnar Regins hf..pdf Reginn kynning v. hluthafafundar 11 feb 2014.pdf Skýrsla stjórnar Regins hf..pdf