Í janúar nam fjöldi farþega í millilandaflugi 125 þúsund og fjölgaði þeim um 15% miðað við janúar á síðasta ári. Framboð í millilandafluginu var aukið um 15%. Sætanýtingin var 70,5% og jókst um 1,6 prósentustig í mánuðinum á milli ára.
Fjöldi farþega í innanlands- og Grænlandsflugi voru 20 þúsund í janúar og fækkaði um 5%. Framboð í janúar var 7% lægra en í janúar á síðasta ári og sætanýting var 68,2% samanborið við 66,1% í janúar 2012. Seldir blokktímar í leiguflugi voru 8% færri en í janúar á síðasta ári. Fraktflutningar jukust um 7% á milli ára. Seldar gistinætur hjá Flugleiðahótelunum jukust um 10% á milli ára. Herbergjanýting var 51,4%, eða 4,8 prósentustigum hærri en í janúar 2013.
MILLILANDAFLUG | JAN 14 | JAN 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 124.745 | 108.920 | 15% |
Sætanýting | 70,5% | 68,9% | 1,6 ppt |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 519,2 | 451.995 | 15% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | JAN 14 | JAN 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 20.353 | 21.460 | -5% |
Sætanýting | 68,2% | 66,1% | 2,1 ppt |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 9,4 | 10.069 | -7% |
LEIGUFLUG | JAN 14 | JAN 13 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 100,0% | 75,0% | 25,0 ppt |
Seldir blokktímar | 2.487 | 2.704 | -8% |
FRAKTFLUTNINGAR | JAN 14 | JAN 13 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 14.207 | 13.439 | 6% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 7.981 | 7.451 | 7% |
HÓTEL | JAN 14 | JAN 13 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 22.940 | 22.940 | 0% |
Seldar gistinætur | 11.788 | 10.694 | 10% |
Herbergjanýting | 51,4% | 46,6% | 4,8 ppt |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010